Hér má hlusta á alla þætti sem fluttir hafa verið úr þáttaröðinni Borgarmyndir. Þættirnir hafa verið á dagskrá á Rás 1 síðan 2016 og nálgast óðfluga 20 talsins. Hver þáttur samanstendur af heimsókn þáttargerðarmanns, Svavars Jónatanssonar, til borgar, þar sem viðtöl, sagnfræðileg innsýn og upplifun íbúa af borginni liggja til grundvallar þættinum. Vegna réttindamála eru hlustendur vinsamlegast beðnir um að deila ekki slóð á þættina, heldur að nálgast þá á hlaðvarpi Rásar 1. Kærar þakkir!
Here are all the episodes currently broadcast from the radio series Borgarmyndir (in Icelandic). The shows have aired on Rás 1 (The Icelandic Broadcasting Corporation) since 2016. Each episode consists of the the producers (Svavar Jónatansson) visit to a city, where interviews, historical insights and the experience of its inhabitants, make up the foundation of a show. Due to licensing issues (due to music) I ask you to not share the link to the shows, but instead find them on the Rás 1 podcast service instead. Thank you!
Fyrsti þáttur í þáttaröðinni Borgarmyndir, sem hóf göngu sína á Rás 1 árið 2016. Í þættinum er fjallað um Berlín, höfuðborg Þýskalands. Meðal viðfangsefna er Görlitzer almenningsgarðurinn, löngum vettvangur fikniefnasölu, upplifun blindrar stúlku af borginni, minningar eldri manns af skemmtanaglaðri borg á tímum kalda stríðsins, og loks kröfuganga nýnasista og andstæðinga þeirra.
First episode of the ongoing radio series Borgarmyndir, broadcast on Rás 1/RÚV (The Icelandic Broadcasting Corporation) since 2016. The subject of this episode is the capital of Germany, Berlin. Among the topics discussed and experienced is the Görlitzer park, long known for drug dealing, the experience of a young blind girl of the city, tan older mans memories of the party hungry city during the cold war, and finally we go to a neo nazi/nationalist rally which is met by a counter rally.