Síðan nóvember 2024 hef ég verið að bjóða skjólstæðingum Hrafnistu í ferðalag um heima og geima með aðstoð sýndarveruleika. Viðbrögðin allt frá upphafi hafa sannfært mig um að þessi tækni á brýnt erindi inn á hjúkrunarheimili. Hér birtist brotabrot af þeim fjölda sem hefur sett á sig gleraugun og gleymt stað og stund til hins betra.