Tæknikynning fyrir VR
And now for something completely different!
Eins og sum ykkar hafa tekið eftir, erum við að byrja að nota sýndarveruleika á Hrafnistu til að veita íbúum magnaða upplifun, tilbreytingu og gleði. Við starfsfólk fáum sömuleiðis tilbreytingu í starfi og gleði við að sjá aðra gleðjast. Fyrirkomulagið er enn í mótun og við erum öll að læra hvernig sé best að nota þessa tækni í starfinu okkar. Jákvæðu hliðar þess að leyfa íbúum að prófa sýndarveruleika eru margar, þar á meðal náttúruleg verkjastilling, hjálp við félagslega einangrun, minka hvers kyns vanlíðan, tækifæri til að skapa nýjar upplifanir, rifja upp minningar og margt fleira. Þið munuð fljótt komast að því þegar þið byrjið sjálf að nota tæknina.
En til þess þurfum við að fara yfir nokkra þætti. Byrjum á sjálfu tækinu og notkun þess, eins og sýnt er í myndbandinu hér að neðan.
Þetta er nokkuð basic tækni! Fjarstýringarnar eru eins og mús á tölvu, takkinn framan á (eins og gikkur á byssu) virkar eins og að smella á tölvumúsina, eða ýta á skjáinn á snjallsíma. Joystick er til að skrolla upp og niður, hægri vinstri, Home takkinn lengst til hægri kemur þér aftur á aðalskjáinn, A takkinn gerir ólíka hluti eftir forritum, en fyrir Youtube kallar hann fram valmöguleika á að fara í önnur myndbönd.
EASY PEASY :)
Þegar þið prófið gleraugun munið bara að þið skemmið ekkert með því að fikta, prófa ólíka takka. En við ætlum að læra nokkra einfalda hluti til þess að geta notað gleraugun og leyft íbúum að prófa. Tökum þetta í litlum skrefum :)
Setja á sig gleraugun. Leggja þau fyrst að andlitinu og svo að draga höfuðólina yfir höfuðið, strekkja eða losa svo þau sitji örugglega á höfðinu (MUNUM AÐ HRISTA ALDREI HÖFUÐIÐ ÞVÍ ÞÁ GÆTU ÞAU DOTTIÐ AF/Í GÓLFIÐ). Gríptu hægri fjarstýringu og settu hendina í gegnum öryggissnúruna. Strektu handólina svo þú missir ekki fjarstýringu
Kveikja á tækinu. Litli takkinn vinstra megin á gleraugum. Halda honum inni í 1 sekúndu. Blátt Meta merki birtist.
Nota hægri fjarstýringuna. Ýta á home takka. Þá ætti að birtast svona mynd
Hún gæti litið öðruvísi út, en svo lengi sem að langi mjói kassinn er neðst, með klukku lengst til vinstri og 8 “kössum” lengst til hægri, þá erum við good to go.
Deildarstjórar á Hrafnistu fara ekkert og gera ekkert án gleraugna ;)
Fyrsta skrefið er að velja “boundary”. Þetta er gerir okkur kleift að vera með gleraugun á okkur, en líka að geta tekið þau af og sett á íbúa sem situr kannski hálfan meter frá okkur. Til að búa til BOUNDARY þá smellum við á klukkumerkið lengst til vinstri (líka wifi merki og batterý status). Þá fáum við upp þessa mynd.
Við smellum á Boundary, og veljum Choose your own boundary. Þá fáum við val á milli Stationary, og Roomscale. Við veljum Roomscale, og Confirm Floor Level. Nú kemur trikkið. Eftir að þú velur Confirm, þá stendur þú upp, beinir fjarstýringu á ská niður á gólfið og dregur stóran hring meðan þú heldur inni gikktakka (framan á fjarstýringu). Láttu hringinn mætast/lokast, á þá verður gólfið fjólublátt innan “hringsins” og fullt af bleikum línum birtast upp og niður skjáinn. Ýtir svo á Confirm.
Magic!
Nú getum við hreyft okkur (og gleraugun) án þess að þau séu stanslaust að vara okkur við. Munum samt alltaf að passa okkur og vera meðvituð um annað fólk og húsgögn. EKKI LABBA UM MEÐ GLERAUGUN Á!
Skemmtilegustu námskeið í sögu Hrafnistu (eða kannski skrýtnustu, en það er betra en leiðinlegustu ;)
4. Nú er komið að því að velja efni til að sýna fólki. Við notum mest Youtube, líklega 90% (við bætum við íslenskum myndböndum og öppum í náinni framtíð) svo við skulum einbeita okkur að Youtube.
Ef Youtube logo birtist ekki neðst á skjánum (á sömu “línu” og klukkumerkið, wifi og hinir kassarnir), þá smellir þú bara á kassann sem er neðst og lengst til hægri. Þar birtist Youtube og önnur “Apps”. Smelltu á Youtube, mundu, með gikk takkanum framan á fjarstýringu-og VOILA! Þá erum við komin inn í töfraveröldina. En við þurfum að kunna að velja efni, setja það í spilun, og fara úr einu myndbandi í annað. Næsta skref :)
5. Við erum með sérstaka Playlista á Youtube sem eru með sérstaklega völdum hágæða 360/VR myndböndum. Munum að við viljum ekki myndbönd sem eru með crazy hristing eða í lélegum gæðum eða valda svima. ENGA RÚSSÍBANA ;)
Til að komast inn í Playlista þá smellir þú á gráa hringinn sem er rétt hægra megin við sjálft YOUTUBE logoið efst á skjánum í miðju. Þar sérðu Playlists. Smelltu á það. Nú ætti að birtast hellingur af “kössum” sem hver um sig er einn playlisti. Td VR Cities Asia (við höfum nöfnin á ensku svo bæði íslenskir og erlendir starfsmenn geti skilið). Ef þú smellir á Playlista birtast öll myndböndin sem eru í þeim playlista. Smelltu nú á eitthvað myndband, td frá Tokyo, og KVISS BANG BÚMM ÞÚ ERT KOMIN TIL TOKYO!
6. Til að fara úr einu myndbandi í annað, og úr einum playlista í annan, getur þú ýtt á B takkann, og þaðan í annað myndband í sama playlista, eða ýtt á gráu örina ofarlega á skjánum, en hún fer með þig aftur í Playlist úrvalið (semsagt að sjá alla playlista).
Nú er komið að því að setja gleraugun á íbúa og leyfa þeim að sjá.
En bíddu, við gleymum mikilvægasta atriðinu!
Nú kunnum við að velja Boundary, fara inn í Youtube, velja myndbönd, en áður en við veljum efni og setjum gleraugun á íbúa þarf mikilvægasta skrefið að eiga sér stað. VR tækni eru hálfgerðir töfrar ef við kunnum að nota hana (nei ekki eins og Harry Potter;) en við þurfum að hafa í huga hver er að fara upplifa þessa töfra. Til að geta valið myndefni verðum við að hafa í huga notandann. Við þurfum að hafa tvennt í huga.
Númer 1-tryggja að fólki líði vel með að nota gleraugun-ÚHR!. ÚTSKÝRA / HVETJA / RÓA :)
Sumir þurfa að verða spenntir til að vilja prófa, meðan aðra þarf að róa, tala rólega og strjúka um axlir og segja að þetta sé ekkert mál. Ég verð með sérstaka kynningu varðandi þessa hluti HÉR en munið bara að HAFA ALLTAF NOTANDANN Í FYRSTA SÆTI. Athygli okkar á að vera á íbúa sem er að prófa, ekki að skilja hann eða hana eftir og fara að spjalla hátt við samstarfsfólk. Við þurfum að læra á hvern og einn varðandi þægindaramma.
Númer 2-Spyrja spurninga til að geta valið efni á Youtube. Við verðum með útprentaðan “hugmyndalista” sem hægt er að nota, en hugsið um hluti eins og áhugamál, ferðalög, starfsferil eða hvað annað sem gæti leiðbeint okkur að efni. Einhver sem elskaði að ferðast til Spánar, ok, beint í VR Nature Europe og finna sólarströnd. Fyrrum sjómaður? Prófa að sýna honum smábátamyndband úr VR Jobs playlista. Þetta er fjársjóðsleit. Vísbendingarnar liggja hjá þeim, svo við verðum að spyrja. Þeir sem ekki geta talað er annað mál. Þar verðum við að prófa okkur áfram. Byrjum á stuttum og rólegum myndböndum, td undir VR Relax playlista, eða VR Animals.
Mamma að sauma klippa og líma fyrir okkur gervileður á gleraugun svo við getum hreinsað þau auðveldlega :)
Ok núna er komið að stóru stundinni! Við erum búin að spjalla smá við einhvern íbúa, segjum bara Pétur (mikill öðlingur) á Sólteig, og í ljós kemur að hann hefur mikið gaman af dýrum í fjarlægum löndum en hefur aldrei sjálfur séð ljón eða fíla. Við setjum á okkur gleraugun, finnum Playlista sem heitir VR Animals, veljum ljónamyndbandið, það byrjar að spilast, við tökum af okkur gleraugun, strjúkum yfir með hreinsiklút, segjum við Pétur “Góða ferð, og mundu að þau bíta ekki”. Áður en við setjum gleraugun á íbúa þá segjum við alltaf að nú ætlum við að setja gleraugun á þau.
Munum að vera mjúkhent, tala við íbúa á meðan, spyrja hvort allt sé í lagi og hvort þau sjái myndina. Aðalatriðið eru skýr samskipti og vera nærgætin. Við erum að skapa þessa stund með þeim og þar skiptir nærvera okkar og samskipti oft jafn miklu máli og sjálft myndefnið.
EN UMFRAM ALLT, MUNUM AÐ HAFA GAMAN AF ÞESSU!
Þegar við erum búin þá slökkvum við á gleraugunum með því að halda inni sama takka og kveikir á gleraugunum, í 3 sekúndur.
Þá kemur valmöguleiki á skjáinn. Við veljum Power options, og þar birtist Power Off. Veljum það, og staðfestum að skjárinn sé orðinn svartur. Göngum alltaf frá gleraugunum strax inn á skrifstofu og setjum í hleðslu.
Takk fyrir að lesa lesa læra læra.
Endum þetta á Unu Torfa og myndum af gleraugunum í notkun (fyrir neðan myndbandið)